Fara í efni

Skilmálar og persónuvernd

Seljandi

Seljandi er Vínvísar. Upplýsingar um félagið eru neðst á þessari síðu.

Pöntun og greiðsla

Pöntun í vefversluninni er beiðni um kaup. Við staðfestum hana með því að senda þér greiðsluhlekk frá Teya á netfangið eða símanúmerið sem þú gefur upp.

Kaupin teljast frágengin þegar greiðslan hefur borist. Greiðsluhlekkurinn gildir í 3 daga; sé hann ekki greiddur fellur pöntunin niður og þér er frjálst að panta aftur.

Verð

Öll verð eru í íslenskum krónum með 24% virðisaukaskatti. Sendingarkostnaður kemur fram í körfunni áður en pöntun er send.

Afhending

Þú velur hvort þú sækir glösin eða færð þau send. Við höfum samband um stað og tíma fyrir afhendingu, og sendingar fara af stað þegar greiðsla hefur borist.

Skilaréttur

Þú hefur 14 daga rétt til að falla frá kaupum frá því að þú tekur við vörunni, án þess að gefa ástæðu. Sendu okkur línu á vinvisar@vinvisar.is.

Skilaðu vörunni ónotaðri og í upprunalegum umbúðum. Þú berð kostnað af því að senda vöruna til baka nema hún sé gölluð. Við endurgreiðum innan 14 daga frá því að tilkynningin berst.

Gallaðar eða brotnar vörur

Glös eru brothætt. Ef sending kemur brotin eða varan er gölluð, sendu okkur mynd innan 7 daga frá móttöku og við sendum nýtt glas eða endurgreiðum.

Persónuvernd

Við söfnum nafni, netfangi, símanúmeri og heimilisfangi til að afgreiða pöntunina, og geymum upplýsingarnar í tölvupósti okkar. Við notum Resend til að senda tölvupóst og Netlify til að hýsa vefinn. Við seljum engar upplýsingar áfram.

Ef þú skráir þig á póstlistann geymum við netfangið þar til þú afskráir þig, sem er hægt í hverjum pósti. Þú átt rétt á afriti af þínum upplýsingum og á að láta eyða þeim - sendu okkur línu.

Lög og ágreiningur

Um kaupin gilda íslensk lög. Náist ekki samkomulag getur þú leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.

Vínvísar ehf. · kt. 441024-0960 · VSK 156018 · Holtsgata 35, 101 Reykjavík · vinvisar@vinvisar.is